top of page

Vilt þú koma í unglingaráð?

Updated: May 19, 2021


Fjörheimar óska eftir nýjum meðlimum í Unglingaráð Fjörheima. Haldinn verður opinn fundur fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt í Unglingaráðinu í vetur þriðjudaginn 25.ágúst klukkan 19:30. Unglingaráðið er fyrir ungmenni í 8.-10.bekk og er ráðið stoð í lýðræði ungmenna í félagsmiðstöðinni. Verkefni innan ráðsins eru af ýmsum toga, meðal annars skipulagning viðburða, góðgerðastörf og dagskrárgerð. Taka má fram að meðlimir ráðsins fá reglulega umbun fyrir vel unnin störf og var til að mynda farið með hópinn í ferð til Akureyrar í lok síðasta skólaárs.

97 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page