top of page

Hæfileikakeppni SamSuð og Söngvakeppni Kragans

Updated: Jan 30, 2020

Hæfileikakeppni SamSuð (Samtök félagsmiðstöðva á Suðurnesjum) og Söngvakeppni Kragans fór fram í Hljómahöll síðastliðinn föstudag. Keppnin er haldin á vegum félagsmiðstöðva á Suðurnesjum og var þetta í sjöunda skipti sem þessi viðburður fer fram og um 200 áhorfendur mættu á keppnina.


Í keppninni voru 11 atriði frá 7 félagsmiðstöðvum, Elítunni, Fjörheimum, Garðalundi, Klakanum, Selinu, Skýjaborg og Þrumunni. Af 11 atriðum voru 9 söngatriði og 2 dansatriði.


Lóa Kolbrá Friðriksdóttir úr Elítunni bar sigur úr bítum með laginu All I Could Do Was Cry eftir Ettu James. Matthildur Emma Sigurðardóttir og Guðrún Ósk Bergmann Magnúsdóttir úr Fjörheimum höfnuðu í öðru sæti með dansatriði sínu og

Sesselja Ósk Stefánsdóttir úr Fjörheimum hafnaði í þriðja sæti með laginu If I Ain't Got You eftir Alicu Keys.


Einnig komust samtals fjögur atriði áfram í Söngvakeppni Samfés, Lóa úr Elítunni, Þórdís úr Garðalundi, Harriet og Ásrún úr Klakanum og Sesselja úr Fjörheimum.


Ljóst er að við eigum mikið af hæfileikaríku ungi fólki sem á framtíðina fyrir sér í leik og starfi!


Kynnir kvöldins var Sigurður Smári Hansson. Rapparinn Viktor Örn Hjálmarsson, úr Þrumunni, aka Vikki Króna tróð upp í dómarahlé og Dj Garðar og Herra Hnetusmjör lokuðu síðan keppninni með hörku balli.


Dómnefnd kvöldsins samanstóð af úrvalsfólki en í dómnefndinni voru Brynja Ýr Júlíusdóttir, Hlynur Þór Valsson, Melkorka Ýr Magnúsdóttir, Perla Sóley Arinbjörnsdóttir og Sigfríð Rut Gyrðisdóttir. Við þökkum þeim fyrir sitt framlag!


Þangað til næst!


Sérstakar þakkir fær Menningarsjóður Suðurnesja fyrir veittan styrk í keppnina.


Verðlaunaafhending keppenda

Ólafur Bergur og Anton Freyr starfsmenn Fjörheima á sviði

Margrét Hulda og Alexandra Mist starfsmenn Fjörheima með ungmennum

Sesselja Ósk Stefánsdóttir

Matthildur Emma Sigurðardóttir og Guðrún Ósk Bergmann Magnúsdóttir

58 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page