top of page

Slysavarnadeildin Dagbjörg gaf Hjólabrettaklúbbnum SK8ROOTS 34 hjólabrettahjálma.


Christopher Umsjónarmaður SK8roots og Silja frá Dagbjörgu með nýju hjálmana

Slysavarnadeildin Dagbjörg gaf hjólabrettaklúbbnum okkar 34 hjálma sem hægt er að nota á hjólabrettaæfingum okkar í Fjörheimum. Umsjónarmenn SK8ROOTS þeir Christopher Andri Hill og Omar Ricardo Rondon tóku á móti hjálmunum fimmtudaginn 26.ágúst á formlegri athöfn sem haldin var í 88 húsinu.


"Hjálmarnir eiga eftir að nýtast starfinu okkar vel enda núverandi hjálmabúnaður orðinn þreyttur og lúinn eftir margra ára notkun. Nýju hjálmarnir eru flottir og stílhreinir og eru krakkarnir mjög spenntir að fá að prófa hjálmana. Allir hjólabrettaiðkendur sem æfa hjá okkur þurfa að nota hjálma þar á meðal við kennararnir og munu þessir hjálmar hjálpa okkur helling þar sem áður fyrr áttum við bara 10 hjálma og gátu þar af leiðandi ekki allir nýtt brettin okkar nema þeir sem komu með sína eigin hjálma". Sagði Christopher Andri Hill


SK8ROOTS er hjólabrettaklúbbur sem er starfræktur í húsnæði Fjörheima á veturna og heldur úti skemmtilegum námskeiðum á sumrin. Skráðir iðkendur í SK8ROOTS eru tæplega 60 talsins og heldur starfið áfram að stækka.


Opnunartímar SK8ROOTS skólaárið 2021-2022 eru eftirfarandi

Fyrir 1-4 bekk Mánudaga 14:00-16:00 og Laugardaga 13:00-15:00

Fyrir 5-7 bekk Þriðjudaga 18:30-20:00 og Laugardaga 13:00-15:00

Fyrir 8-10 bekk Þriðjudaga 20:00-21:30 og Laugardaga 13:00-15:00

Fyrir 16 ára og eldri Fimmtudaga 20:00-21:30 og Laugardaga 13:00-15:00


Starfsfólk Fjörheima og 88 Hússins vill þakka Slysavarnadeildinni Dagbjörg kærlega fyrir þessa gjöf. Við erum mjög heppin að hafa sterk félagasamtök eins og Dagbjörgu sem vilja styrkja starfið okkar því án þeirra gætum við ekki haldið úti eins fjölbreyttu og stóru starfi eins og við höfum gert síðastliðin ár.




173 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page