Sumar í Fjörheimum

June 4, 2026

Gleðilegt sumar!!

Nú erum við komin í sumarfrí frá venjulegum opnunartímum en munum bjóða uppá sumaropnanir í Fjörheimum Hafnó á miðvikudögum og er fyrsta opnun núna í vikunni!

Þökkum fyrir frábæran vetur og hlökkum til að sjá ykkur á öllum okkar starfstöðvum í haust.
Starfsemi Vinnuskóla Reykjanesbæjar er starfandi í Hafnargötunni í sumar, ásamt smiðjum fyrir ungmenni í samstarfi við vinnuskólann. Einnig bjóðum við upp á listanámskeið í Listasmiðju Reykjanes og sumarnámskeið fyrir 5.-7.bekk í Fjörheimum Stapa!

April 1, 2026
Við opnum aftur þriðjudaginn 7.apríl, vonum að þið hafið það gott í fríinu!
By Melkorka Ýr Magnúsdóttir February 13, 2026
Söngkeppni Kragans verður haldin í Hljómahöll þann 6.mars. Kraginn samanstendur af Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Vogum, Grindavík, Seltjarnarnesi, Garðabæ og Mosfellsbæ. Þau sem taka þátt í keppninni geta unnið sér inn sæti í söngkeppni Samfés sem er haldin í maí ár hvert. Skráning fer fram í öllum okkar félagsmiðstöðvum eða í gegnum QR kóða hér fyrir ofan. Skráningarfrestur er til 27.febrúar!
By Melkorka Ýr Magnúsdóttir January 22, 2026
Hafnó er nú með nýja opnunartíma fyrir miðstigið! Við bjóðum nemendur á miðstigi velkomna í Hafnó á Hafnargötu 88, þar sem þau geta hist, haft gaman og tekið þátt í fjölbreyttri og skemmtilegri starfsemi í öruggu og notalegu umhverfi. Í Hafnó er lögð áhersla á góða stemningu, vináttu, virðingu og virkni og starfsemin mótast af áhuga og hugmyndum þátttakendanna sjálfra.
Eldri fréttir