Sumarpartý SamSuð 8.-10. bekkur

Um 40 ungmenni komu saman í Fjörheimum miðvikudaginn 6. júní þegar við héldum sumarpartý SamSuð (samtök félagsmiðstöðva á Suðurnesjum). Við grilluðum pylsur og sykurpúða, sungum saman og spiluðum Twizter og kubb. Veðrið var frábært og gátum við myndað góða útilegustemningu.









