SAMFÉLAGSMIÐLAR - fræðslukvöld fyrir forelra
Forsjáraðilar og aðrir áhugasamir athugið.
Þann 27. mars kl.19:30-20:30 verður fræðslukvöld um notkun samfélagsmiðla meðal ungmenna í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ.
Við fáum góðan gest, Skúla Braga Geirdal frá Fjölmiðlanefnd, til að ræða niðurstöður rannsóknarinnar „börn og netmiðlar.“
Starfsfólk Fjörheima ræða einnig um nýja fræðslu sem byggir á niðurstöðum rannsóknarinnar en á næstu dögum verður farið með fræðsluna í alla grunnskóla bæjarins.
Fræðslan er unnin í samstarfi við FFGÍR.
