Fjörheimar

fullDatetime-to-read.short-label

Styrkur frá Ragnarseli til Fjörheima og 88 hússins

Nú á dögunum veitti Ragnarsel Fjörheimum og 88 húsinu veglegan styrk. Ragnarsel var úrræði fyrir einstaklinga með fötlun sem rekið var af Þroskahjálp Suðurnesja.

Fyrir styrkinn var okkur fært að fjárfesta í myndavél sem nýtist í það fjölbreytta starf sem fer fram í Fjörheimum og 88 húsinu. Meðal þeirra fjölbreyttu starfa má nefna fréttaþáttinn FjörheimarTV, viðburði Fjörheima og 88 hússins, í stúdíóinu okkar ýmist í upptöku og önnur störf en einnig í eftirskólaúrræði fyrir einstaklinga með fötlun sem fer fram í 88 húsinu.

Takk kærlega fyrir okkur!

Við hvetjum ykkur að fylgjast með störfum okkar á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram undir @fjorheimarfelagsmidstod.

    510
    0