Fjörheimar

fullDatetime-to-read.short-label

Ljósanæturball, skemmtum okkur fallega

Ljósanæturballið er árlegur viðburður fyrir ungmenni í 8.-10. bekk (fædd 2008-2010). Ballið verður miðvikudaginn 30. ágúst kl. 21:00-23:00 í Stapasal í Hljómahöll.

Húsið opnar 20:45 og munu Sprite Zero Klan, DJ Ólafur Jóhann og Friðrik Dór halda uppi stuðinu.

Miðinn kostar 3000 kr. en miðasalan fer fram í húsakynnum Fjörheima (Hafnargötu 88).

Tímasetning miðasölu:

- Miðvikudaginn 23. Ágúst kl. 19:30-21:30

- Föstudaginn 25. Ágúst kl. 19:30-21:30

- Mánudaginn 28. Ágúst kl. 19:30-21:30

(ath. ekki er hægt að kaupa miða við hurð)

Reglur fyrir ballið má finna hér að neðan, munum að skemmta okkur fallega!

Ungmenni frá öðrum félagsmiðstöðvum á Suðurnesjum geta keypt miða í sinni félagsmiðstöð.

Nánari upplýsingar má finna á samfélagsmiðlum félagsmiðstöðvarinnar Fjörheima.

    760
    0