|
HEFUR ÞÚ GAMAN AÐ ÞVÍ AÐ TAKA MYNDIR? |
|
|
|
Written by Fjörheimar
|
|
Monday, 08 March 2010 |
Ef þú ert í 5., 6., 7., 8., 9. eða 10. bekk þá er þetta eitthvað fyrir þig!
Bókasafn Reykjanesbæjar og Byggðasafn Reykjanesbæjar efna til ljósmyndamaraþons fyrir grunnskólabörn í 5. - 10. bekk í tilefni af Barnahátíð 22. - 25. apríl næstkomandi. Þátttakendum verður skipt upp í 2 aldurshópa, 5. - 7. bekkur og 8. - 10. bekk og verðlaun veitt í báðum flokkum, myndavél fyrir bestu myndir í heild og aukaverðlaun fyrir frumlegar útfærslur.
Maraþonið sjálft fer fram laugardaginn 13. mars en þá verður safnahelgi á Suðurnesjum. Mæta þarf á Bókasafnið klukkan 13:00 og skrá sig til leiks. Þátttakendur fá þá leiðbeiningar með upplýsingum um þau 3 viðfangsefni eða þemu sem á að mynda og hvert og hvernig eigi að senda myndirnar. Þátttakendur hafa daginn til að mynda en myndir þarf að senda í tölvupósti fyrir miðnætti, eina af hverju viðfangsefni. Meðfylgjandi mynd er tekin af Samúel A. Ólafssyni í ljósmyndamaraþoni Bókasafnsins og Fjörheima árið 2002 og túlkar myndarfólk.
Dómnefnd verður bæði skipuð atvinnuljósmyndurum og áhugafólki. Um leið og úrslit verða kynnt verður sett upp sýning á verðlaunamyndum á Bókasafninu. Reykjanesbær áskilur sér rétt til að nota þær myndir sem sendar verða inn, til dæmis í auglýsingar.
|